Núna loksinns er eitthvað búið að gerast í mínu lífi sem er blogghæft.
Ég gerðist þða djörf að fara í Eimusision keppni, sem er söngva keppni á milli deilda í Eimskip.
Ég, Máni, Bjartur og Kristín Telma tókum þátt saman og vitiði þó að ég sé feimnari en allt sem feimið er þá lét ég mig hafa það og var alveg að fíla mig þarna. þetta var geðveikt gaman.
ég var búin að vera svo rosalega stressuð frá því að við skráðum okkur í keppnina þar sem þá var þetta orðið fast einhvern veginn að við myndum gera þetta. Og þegar ég verð stressuð þá verð ég geðveikt hæber einhvern vegin annað hvort kem ég engu í verk eða vinn geðveikt hratt, sem ég gerði á fimmtudagskveldinu. og ég skráði 480 bréf bara undir kvöldið, við vorum að reyna að vera rosalega duglegar til að allir kæmust á kvöldið stóra sko hehe sem okkur tókst.
en þegar stóra kvöldið kom þá fórum við að æfa um kl 2 og það fór bara allt í vaskinn sko, æfðum ekki neitt og vorum heila eilífð að koma þessum búning á okkur þarna. hehe en sem betur fer komumst við deginum áður til að æfa okkur í klukkutíma þannig að við vorum búin að samræma okkur smá.
þegar við komum svo á staðinn þar sem þetta var haldið þá löbbum við Kristín Telma inn reyna að láta feimnina ekki sína sig og allir gláptu á okkur og svo fór hópurin bara að klappa fyrir okkur. þetta var geðveik tilfinning en mar er náttlega svo feiminn að maður reynir bara að hunsa, þannig að við löbbuðum bara í gegnum þennan hóp þar sem okkar hópur þurfti nú setjast einhvern staðar aftast.
En okkur tókst þetta og við unnum tvenn verðlaun, Bestu búningarnir og svo besta klappstýruliðið. eða sem sagt okkar deild.
svo af því að ég var með kolluna þá var hárið á mér ógeðslegt þarna undir þá varð mín að fara með þessa kollu í bæjinn og athyglin sem við fengum var rosalega sko.
ef þetta er tíminn til að hösla þá er það svona útlídandi hehe.
en allavega ég ætla að reyna að láta myndbandið inn ef það verður ekki inni þá hefur mér ekki tekist það..
en allavega ég er farin.
ove and out
